Óttar Magnús til Vis Pesaro (Staðfest)

Óttar Magnús Karlsson.

Mynd: Oakland Roots

Óttar Magnús Karlsson.

Mynd: Oakland Roots
Sóknarmaðurinn Óttar Magnús Karlsson færði sig um set á gluggadeginum en hann er kominn yfir til VIs Pesaro á láni frá Venezia.
Vis Pesaro er í C-deildinni á Ítalíu en Óttar Magnús er með ágætis reynslu úr þeirri deild.
Hinn 26 ára gamli Óttar Magnús spilaði með Virtus Francavilla í deildinni á síðasta tímabili og spilaði þá sjö leiki án þess að skora mark. Hann spilaði einnig með Siena í deildinni 2021/22 og skoraði þá tvö mörk í 19 leikjum.
Óttar Magnús er uppalinn í Víkingi en hefur komið víða við á ferlinum sínum. Hann hefur spilað í Noregi, Svíþjóð og Bandaríkjunum ásamt því að leika á Ítalíu. Hann var einnig um tíma í akademíu Ajax, stærsta félagsins í Hollandi.
Vis Pesaro spilar við SPAL á morgun og það er spurning hvort Óttar Magnús komi við sögu þar.