Sangare og Origi til Nottingham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Það hefur verið nóg að gera hjá Nottingham Forest í dag en félagið nældi í tvo leikmenn undir lok félagaskiptagluggans.
Divock Origi kemur til félagsins á láni frá Milan en hann þekkir vel til í úrvalsdeildinni þar sem hann lék í átta ár hjá Liverpool.
Hann lék 175 fyrir Bítlaborgarliðið og skoraði 41 mark og þar af nokkur mjög mikilvæg. Hann varð enskur meistari með liðinu tímabilið 2019/20 auk þess að vinna enska bikarinn og Meistaradeildina.
Þá keypti Forest leikmann frá PSV í Hollandi en sá er Ibrahim Sangare. Hann kemur til liðsins fyrir 30 milljónir punda. Þessi 25 ára gamli Fílbeinsstrendingur lék 29 leiki og skoraði 5 mörk fyrir PSV sem hafnaði í 2. sæti hollensku deildarinnar á síðustu leiktíð.
Hann gerir fimm ára samning við félagið. Hann var orðaður við mörg sterk félög í sumar m.a. Bayern Munchen.
A message from Divock ????#NFFC | #WelcomeDivock ???????? pic.twitter.com/ByDUtRo05r
— Nottingham Forest (@NFFC) September 1, 2023




