Fotbolti.net
01.09.23 - 23:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sinisterra til Bournemouth (Staðfest) - Anthony fer í hina áttina

Sinisterra til Bournemouth (Staðfest) - Anthony fer í hina áttina
Canon

Mynd: Getty Images

Félagaskiptin eru enn í fullum gangi en Bournemouth hefur staðfest komu Luis Sinisterra frá Leeds United. Hann gerir lánssamning út tímabilið með kaupmöguleika.

Jaidon Anthony fer til Leeds á láni frá Bournemouth.

Þessi 24 ára gamli kólumbíski landsliðsmaður gekk til liðs við Leeds síðasta sumar frá Feyenoord og skoraði 5 mörk í 19 leikjum þegar Leeds féll úr úrvalsdeildinni. Hann hafði skorað eitt mark í tveimur leikjum í Championship deildinni til þessa.

Hann er áttundi leikmaðurinn sem Bournemouth fær í sumar en Sinisterra sameinast aftur Tyler Adams sem Bournemouth keypti frá Leeds fyrr í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.