Vlachodimos til Nottingham Forest (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur staðfest að gríski markvörðurinn Odysseas Vlachodimos er genginn til liðs við félagið frá Benfica. Hann gerir fjögurra ára samning við félagið.
Vlachodimos var aðalmarkvörður Benfica þegar liðið vann portúgölsku deildina í 38. sinn á síðustu leiktíð. Hann hélt 21 sinni hreinu í 34 leikjum.
Þessi 29 ára gamli markvörður á að baki 33 landsleiki fyrri hönd Grikklands. Hann er fæddur í Þýskalandi og er uppalinn hjá Stuttgart og lék með yngri landsliðum Þýskalands.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Forest fær til sín á þessum gluggadegi.
The full story as we #WelcomeOdysseas to Trentside ??
— Nottingham Forest (@NFFC) September 1, 2023





