Fotbolti.net
01.11.23 - 11:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hallgrímur fundaði með Gróttu en tekur ekki við - „Er ekki að flýta mér"

Hallgrímur með föður sínum, Heimi Hallgrímssyni.

Hallgrímur með föður sínum, Heimi Hallgrímssyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Grótta mun á næstu dögum tilkynna nýjan þjálfara fyrir kvennalið félagsins. Grótta kom mjög á óvart í Lengjudeildinni í sumar og var ekki langt frá því að komast upp í Bestu deildina einu ári eftir að hafa komið upp úr 2. deild.
Pétur Rögnvaldsson tilkynnti það eftir tímabilið að hann myndi ekki halda áfram með Gróttuliðið. Síðan þá hefur leit staðið yfir að eftirmanni hans.

Hallgrímur Heimisson, sem að undanförnu hefur þjálfað í yngri flokkum Vals, hefur verið orðaður við starfið en hann mun ekki taka við Gróttuliðinu að þessu sinni.

„Nei, það er ekki rétt. Ég fór á fund með Gróttu en ég er ekki að taka við þar. Eins og staðan er núna, þá verð ég áfram hjá Val," segir Hallgrímur en hann er sonur Heimis Hallgrímssonar, fyrrum landsliðsþjálfara Íslands og núverandi landsliðsþjálfara Jamaíku. Hann er því með góðan læriföður.

Hallgrímur hefur talað við fleiri félög. Hann segir að markmiðið sé á endanum að fara í meistaraflokksþjálfun en hann ætlar ekki að flýta sér við það.

„Það er alltaf markmiðið, en ég er ekki að flýta mér. Ég er að passa mig á því að gera þetta allt á réttum tíma. En það er hugurinn og markmiðið. Ég tók spjall með Gróttu. Ég hef líka rætt við önnur félög, en mér finnst þetta ekki alveg rétti tímapunkturinn að fara í þetta. Ég verð áfram hjá Val eins og staðan er núna."

„Þetta er klárlega eitthvað sem ég er að hugsa um fyrir framtíðina. Ég er spenntur að fara í teymi hjá einhverjum stórlax sem ég mun læra af," segir Hallgrímur.

Þjálfarastaðan hjá meistaraflokki kvenna hjá ÍBV er laus núna. Hallgrímur er Eyjamaður. Er það eitthvað sem hann hefur áhuga á?

„Ég get lofað því að ég mun einhvern tímann þjálfað þar en ég á kærustu í bænum sem er í góðri vinnu og þetta er ekki tímapunkturinn að fara til Vestmannaeyja, en í framtíðinni mun ég pottþétt fara þangað. Eins og ég segi, þá verð ég áfram hjá Val eins og staðan er núna," sagði Hallgrímur.

Ráða þjálfara á næstu dögum
Þorsteinn Ingason, formaður knattspyrnudeildar Gróttu, segir að það verði ráðinn nýr þjálfari hjá meistaraflokki kvenna á næstu dögum.

„Við höfum verið að leita að þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna. Við vonumst til að tilkynna um ráðningu á nýjum þjálfara ekki síðar en um helgina. Við erum að vinna í málinu og erum að vonast til að geta tilkynnt um ráðningu á nýjum þjálfara á allra næstu dögum," sagði Þorsteinn við Fótbolta.net.
Grótta kom mjög á óvart í Lengjudeildinni í sumar og var ekki langt frá Bestu deildinni í sumar.

Grótta kom mjög á óvart í Lengjudeildinni í sumar og var ekki langt frá Bestu deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Grótta ætlar að ráða þjálfara á næstu dögum.

Grótta ætlar að ráða þjálfara á næstu dögum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.