Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 02. janúar 2021 11:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Coutinho frá í þrjá mánuði (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho verður frá vegna meiðsla fram í apríl hið minnsta eftir að hafa farið í aðgerð á hné.

Coutinho meiddist gegn Eibar á þriðjudagskvöld en hann kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik.

Þetta eru vondar fréttir fyrir Börsunga sem eru þegar án Ansu Fati sem er meiddur á hné og verður frá þar til í mars.

Barcelona staðfesti í dag að Coutinho verður frá í þrjá mánuði í kjölfar aðgerðarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner