Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 02. janúar 2021 11:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leik Burnley og Fulham frestað (Staðfest)
Mynd: Twitter
Leik Burnley og Fulham hefur í ensku úrvalsdeildinni hefur verið frestað vegna Covid-19.

Leikurinn átti að fara fram í hádeginu á morgun.

Í frétt The Athletic um frestunina segir að leiknum hafi verið slegið á frest vegna frekari smita innan herbúða Fulham.

Leik Tottenham og Fulham var frestað á miðvikudagskvöld vegna smita hjá Fulham.

„Ég veit ekki hvort leikurinn fari fram. Við höfum farið í prófanir undanfarna daga og við undirbúum okkur eins vel og við getum," sagði Scott Parker, stjóri Fulham, á blaðamannafundi í gær.


Athugasemdir
banner
banner
banner