Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 02. janúar 2023 21:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ingó Sig í Víði (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingólfur Sigurðsson er genginn til liðs við Víði í Garði en þessi 29 ára gamli miðjumaður kemur frá KV þar sem hann lék í þrjú tímabil.


Hann hefur leikið 233 leiki í meistaraflokki og skorað 54 mörk. Hann hefur leikið með liðum á borð við KR og Val í efstu deild.

"Ég er mjög ánægður með að vera kominn í Víði. Sveinn Þór er virkilega öflugur og spennandi þjálfari og er hann stór ástæða þess að ég samdi við Víði" sagði Ingó við undirskrift.

„Ingó er án efa öflugur liðsstyrkur fyrir komandi baráttu í 3. deild og við bjóðum hann hjartanlega velkominn í Garðinn," segir í tilkynningu félagsins.


Athugasemdir
banner
banner