Allar ákærur á hendur Mason Greenwood leikmanns Manchester United voru felldar niður í dag en hann hefur nú sent frá sér yfirlýsingu.
Greenwood var ákærður fyrir tilraun til nauðgunar, fyrir ofbeldisfulla hegðun og fyrir að hafa ráðist á fyrrum kærustu sína, Harriet Robson.
Réttarhöld í máli hans áttu að fara fram í nóvember en lögreglan hefur núna ákveðið að fella niður ákærurnar eftir langa rannsókn. Lögreglan segir að nýjar vendingar hafi komið upp í málinu sem urðu þess valdandi að ekki var lengur talinn möguleiki á sakfellingu.
„Mér er létt að þessu sé nú lokið. Ég vil þakka fjölskyldu og vinum fyrir stuðninginn," segir Greenwood í stuttri yfirlýsingu en hann mun ekki tjá sig frekar að svo stöddu.
Manchester United hefur hafið ákveðið ferli áður en næstu skref verða ákveðin.