Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   fim 02. febrúar 2023 19:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tyrkland: Enner Valencia tryggði Fenerbache stig gegn Adana
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adana Demirspor gerði jafntefli gegn Fenerbache í tyrknesku deildinni í kvöld en Birkir Bjarnason kom ekkert við sögu í leiknum.


Hann var á bekknum í kvöld en hann hefur verið inn og út úr liðinu á þessari leiktíð.

Fenerbache var fyrst til að koma boltanum í netið en það gerði Mert Hakan Yandas eftir tæplega stundarfjórðung en markið var dæmt af.

Eftir rúmlega hálftíma leik fékk Adana vítaspyrnu en Younes Belhanda klikkaði á spyrnunni.

Það var markalaust í fyrri hálfleik en Badou Ndiaye kom Adana yfir á 83. mínútu en þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma jafnaði Enner Valencia metin fyrir Fenerbache og tryggði liðinu stig.

Fenerbache er í 2. sæti með 45 stig, sex stigum frá toppnum eftir 21 umferð en Adana er í 5. sæti með 38 stig.


Athugasemdir
banner