Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. mars 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mertens að framlengja við Napoli eftir allt saman
Mynd: Getty Images
Dries Mertens, sókarmaður Napoli, færist nær því að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Það er hinn áreiðanlegi Fabrizio Romano sem segir frá þessu.

Samningur hins 32 ára gamla Mertens á að renna út eftir tímabilið og höfðu viðræður á milli leikmannsins og félagsins gengið illa til þessa. Nú er samkomulag hins vegar næstum því í höfn um nýjan samning til 2022.

Mertens hafði verið orðaður við félög á borð við Inter, Roma, Arsenal, Chelsea og Manchester United.

Belginn jafnaði á dögunum markametið hjá Napoli er hann skoraði gegn Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner