Fotbolti.net
02.03.26 - 19:16
Brynjar Ingi Erluson

Ný rangstöðuregla Wengers notuð í kanadísku deildinni

Arsene Wenger

Arsene Wenger

Canon

Mynd: EPA

Rangstöðureglan sem Arsene Wenger, yfirmaður þróunarsviðs fótboltamála hjá FIFA, er loksins að koma henni að í fótboltanum, en hún verður prófuð í kanadísku úrvalsdeildinni í næsta mánuði.
Wenger segir vanta fleiri mörk í fótboltann og telur ekki rétta að vera teikna línur til að komast að því hvort leikmaður sé rangstæður eða ekki.

Sóknarmaðurinn á að njóta vafans, en hann vill gera rangstöðuregluna þannig að aðeins sé dæmt rangstæða ef pláss er á milli síðasta varnarmanns og sóknarmanns.

UEFA og fótboltanefnd IFAB hafa ekki tekið vel í þessa hugmynd Wengers sem þeir telja vera allt of stóra breytingu á reglunni, en núna hefur kanadíska úrvalsdeildin samþykkt að prófa þessa reglu.

Reglan hafði áður verið notuð á mótum hjá unglingaliðum og verður nú kanadíska deildin þeirra stærsta tilraun til þessa, sem verður fullkominn vettvangur til þess að sjá hvort það sé raunverulegur möguleiki á að nota regluna í stærri deildum.

Kanadíska úrvalsdeildin notast ekki við VAR, en hefur nú opnað á þessa reglu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.