Fotbolti.net
27.10.26 - 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Þetta reyndist í rauninni of gott til að vera satt"

Kevin kom frábærlega inn í lið Þórs.

Kevin kom frábærlega inn í lið Þórs.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Óvæntustu félagaskipti sumarsins voru líklega koma spænska reynsluboltans Kevin Vazquez til Þórs.

Vazquez er 33 ára bakvörður í grunninn en spilaði mest fyrir Þór sem djúpur miðjumaður. Fyrir rúmum tveimur árum var hann að spila í spænsku úrvalsdeildinni með Celta Vigo. Alls hefur hann spilað 68 leiki í La Liga á ferlinum.

En af hverju vildi leikmaður með þessa reynslu koma í Þór? Fótbolti.net ræddi við formann fótboltadeildar Þórs.
Útskýrir af hverju hann er kominn í Þór eftir farsælan feril á Spáni
TENGT EFNI

Útskýrir af hverju hann er kominn í Þór eftir farsælan feril á Spáni

„Ég eiginlega get ekki svarað því, þetta var ótrúlegt þegar þetta kom upp. Það fyrsta sem ég sagði við Sigga þjálfara var að af því að þetta hljómaði of gott til að vera satt, þá yfirleitt væri það raunin. Ég sagði að það væri eflaust eitthvað sem væri ekki sagt við okkur, hann væri ekki heill eða eitthvað svoleiðis, það væri eitthvað að. Ég spurði hvort við ættum nokkuð að vera að eyða tíma í þetta," segir Sveinn Elías Jónsson.

„Svo kom á daginn að þetta væri allt á mjög raunhæfum forsendum. Eina sem við fengum að vita var að hann væri algjör stríðsmaður og það er ekki það fyrsta sem maður hugsar þegar maður hugsar um spænska leikmenn. Þessi er öðruvísi og við hugsuðum að við yrðum að taka séns."

„Hann er frábær leikmaður og á sama tíma algjör fagmaður út í fingurgóma. Það er ekki af ástæðulausu að þessi gæi sé búinn að spila á svona háu getustigi. Hann kom með mikla fagmennsku og kom vel inn í hópinn. Þetta reyndist í rauninni of gott til að vera satt,"
segir Sveinn Elías.
Í baráttunni við Vini JR.

Í baráttunni við Vini JR.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.