Fotbolti.net
27.10.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Arsenal gegn Fleetwood: Níu breytingar

Byrjunarlið Arsenal gegn Fleetwood: Níu breytingar
Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal heimsækja League Two lið Fleetwood Town í enska deildabikarnum í kvöld.
Mikel Arteta þjálfari Arsenal gerir níu breytingar á byrjunarliðinu sem hafði betur gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni um helgina, þar sem Myles Lewis-Skelly og Viktor Gyökeres eru þeir einu sem halda sínu sæti í byrjunarliðinu.

16 ára Max Dowman byrjar ásamt táningunum Marli Salmon og Ceadach O'Neill. Þá virðist Illan Meslier vera búinn að hirða varamarkmannsstöðuna af Kepa Arrizabalaga, þar sem Meslier byrjar á milli stanganna í dag með Kepa á bekknum.

Fleetwood situr í neðri hluta League Two deildarinnar, sem er sú fjórða efsta í enska deildakerfinu. Þetta er því algjör skyldusigur fyrir Englandsmeistarana.

Arsenal: Meslier; Timber, Salmon, Mosquera, Hincapie; Zubimendi, Lewis-Skelly, Dowman; Havertz, Gyokeres, O'Neill
Varamenn: Kepa, White, Odegaard, Eze, Konsa, Guimaraes, Harriman-Annous, Washington, Hashi
Byrjunarlið Arsenal gegn Fleetwood: Níu breytingar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.