27.10.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon
Sage fær meiri tíma eins og Carrick

Pierre Sage.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Pierre Sage.

Mynd: EPA
Þeir stjórar í ensku úrvalsdeildinni sem eru taldir í heitustu sætunum fá meiri tíma til að reyna að snúa genginu við.
Fyrr í dag var greint frá því að Michael Carrick muni stýra Manchester United í leiknum gegn Chelsea á laugardag.
Nú segir Guardian að Pierre Sage hefur fengið meiri tíma til að snúa gengi Crystal Palace við en hann er enn undir mikilli pressu og gæti verið rekinn ef liðið tapar gegn Tottenham á laugardaginn.

TENGT EFNI
Carrick stýrir Man Utd áfram og fær tækifæri til að snúa genginu við
Staða Frakkans var í mikilli óvissu eftir enn eina lélega frammistöðu í 2-0 tapinu gegn Newcastle um helgina, tap sem kom í kjölfar 5-0 taps gegn Brighton.
Steve Parish, stjórnarformaður Palace, hefur ákveðið að gera ekki neitt í ljósi þéttrar leikjadagskrá Palace: liðið mætir Fulham á Craven Cottage í Carabao deildabikarnum á morgun.
Sage var meðal gesta á Ballon d'Or athöfninni í London á mánudagskvöldið. Palace er í 17. sæti og hefur fengið á sig 19 mörk í átta leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Það er talið að Sage njóti stuðnings leikmannahópsins.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Leeds | 8 | +3 | 11 |
| 8 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 9 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 8 | -8 | 5 |