27.10.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Reiði stuðningsmanna beindist að Wilcox

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Manchester United

Mynd: EPA
Það er krísa innan herbúða Manchester United eftir hörmulega byrjun á nýju tímabili undir stjórn Michael Carrick.

TENGT EFNI
Man Utd undirbýr uppstokkun í varnarlínunni
Rauðu djöflarnir steinlágu á heimavelli gegn Bournemouth um helgina og eru aðeins búnir að vinna tvo leiki af tólf í öllum keppnum á tímabilinu.
Reiði stuðningsmanna beinist þó að stjórninni frekar heldur en þjálfaranum og er tók að líða á leikinn mátti heyra níðsöngva gegn Jason Wilcox, yfirmanni fótboltamála.
Þjálfarastarf Carrick er í hættu en ólíklegt er að Wilcox verði rekinn. Varnarmaðurinn Lisandro Martínez gagnrýndi Wilcox eftir tap gegn Atlético Madrid fyrir tveimur vikum og virðist hluti stuðningsmanna vera sammála orðum Argentínumannsins.
Wilcox hefur verið yfirmaður fótboltamála hjá Rauðu djöflunum í rúmlega tvö ár og hjálpaði félaginu að krækja í nýja framherja í fyrrasumar og nýja miðjumenn í sumar. Man Utd vildi gera meira á markaðnum en tókst ekki af fjárhagsástæðum.
Félagið vildi selja úrúgvæska landsliðsmanninn Manuel Ugarte, en hann meiddist illa á HM og varð því óseljanlegur. Þá vildi United selja Marcus Rashford til Barcelona vegna himinhárra launa hans, en Börsungar keyptu frekar Anthony Gordon úr röðum Newcastle.
Wilcox starfaði hjá Manchester City áður en hann var ráðinn til Man Utd, en til gamans má geta að hann starfaði einnig með Omar Berrada og Stephen Torpey hjá City sem hafa báðir verið ráðnir til United.
Stuðningsmenn eru ósáttir að félagið hafi ekki styrkt hópinn sinn meira síðasta sumar, þá sérstaklega varnarlínuna sem hefur verið að mígleka mörkum.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Leeds | 8 | +3 | 11 |
| 8 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 9 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 8 | -8 | 5 |