Fotbolti.net
27.10.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson

„Sjaldgæft að sjá alvöru fyrirmyndir eins og Kane"

„Sjaldgæft að sjá alvöru fyrirmyndir eins og Kane"
Canon

Mynd: EPA

Harry Kane var í gærkvöldi krýndur besti leikmaður heims á Ballon d'Or verðlaunahátíðinni. Hann var valinn bestur framyfir Kylian Mbappé og Lamine Yamal sem hafa farið mikinn í fjölmiðlum undanfarnar vikur.
Kane vann Ballon d'Or verðlaunin (Staðfest)
TENGT EFNI

Kane vann Ballon d'Or verðlaunin (Staðfest)

Kane kaus að vera ekki að tjá sig mikið þrátt fyrir tíðar spurningar um Ballon d'Or. Hann talaði alltaf af hógværð og virðingu á meðan styttra var í hrokann hjá Mbappé og Yamal.

Kane er 33 ára gamall, fimm og hálfu ári eldri heldur en Mbappé og fjórtán árum eldri en Yamal.

„Harry Kane á þessi verðlaun skilið og ekki bara út af því að hann átti ótrúlegt tímabil á síðustu leiktíð, heldur líka út af því að hann er alvöru fyrirmynd," segir Karl-Heinz Rummenigge, goðsögn og stjórnandi hjá FC Bayern. „Það er sífellt sjaldgæfara að finna alvöru fyrirmyndir í íþróttaheiminum og í samfélaginu í heild."

Kane hefur fengið mikið hrós frá ýmsum goðsögnum úr fótboltaheiminum eftir að hafa unnið Ballon d'Or verðlaunin. Þar að auki lýsti Vilhjálmur Bretaprins yfir stolti sínu.

Kane er fyrirliði enska landsliðsins og markahæstur í sögunni, ásamt því að deila meti með Peter Shilton yfir flesta spilaða landsleiki.

Kane á 91 mark í 125 landsleikjum og er markahæsti leikmaður í sögu Tottenham. Hann skoraði þá 73 mörk í 65 leikjum fyrir Bayern og England á síðustu leiktíð, sem varð til þess að hann vann Ballon d'Or kosninguna.
„Sjaldgæft að sjá alvöru fyrirmyndir eins og Kane"
Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern7+1917
2Dortmund7+817
3Freiburg7+713
4Leverkusen7+413
5RB Leipzig7+912
6Werder7+112
7Mainz7+310
8Elversberg7-310
9Augsburg7+49
10Hoffenheim709
11Hamburger7-109
12Köln7-38
13Paderborn7-38
14Frankfurt7-78
15Stuttgart7-36
16Schalke 047-36
17Union Berlin7-126
18Gladbach7-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.