Fotbolti.net
27.10.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Pedro frá næstu vikur - Wirtz líklega með á morgun

Joao Pedro

Joao Pedro

Canon

Mynd: EPA

Liverpool fær Chelsea í heimsókn í 16-liða úrslitum enska deildabikarsins á morgun.

Brasilíski sóknarmaðurinn Joao Pedro verður ekki með Chelsea í leiknum.

„Hann er meiddur í læri og verður frá í nokkrar vikur. Við skulum sjá hversu margar. Hann er ekki tilbúinn fyrir næstu leiki," segir Xabi Alonso, stjóri Chelsea.
Landi hans og kollegi, Andoni Iraola hjá Liverpool, ræddi einnig við fjölmiðla í dag,

Hann segist bjartsýnn á að Florian Wirtz geti spilað en hljómaði ekki eins bjartsýnn varðandi Dominik Szoboszlai og Victor Munoz.

„Ég vil ekki útiloka neitt, en ég held að það sé ólíklegra með þá tvo en með Florian,“ segir Iraola.
Florian Wirtz.

Florian Wirtz.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.