Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 02. apríl 2021 22:28
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona eltist við vængmann Valencia
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Barcelona er að eltast við spænska vængmanninn Fabio Blanco en hann verður samningslaus í sumar.

Blanco er aðeins 17 ára gamall en hann er á mála hjá spænska félaginu Valencia.

Mörg stórlið í Evrópu eru að fylgjast með stöðu hans en minni félög hafa boðið honum byrjunarliðssæti.

Eins og áður segir þá verður hann samningslaus í sumar en Börsungar hafa þegar boðið honum samning og hafa lofað honum að lána hann út í annað spænskt úrvalsdeildarfélag.

Blanco hefur ekki enn spilað leik fyrir aðallið Valencia en hann á fimm leiki að baki fyrir yngri landslið Spánar og skorað í þeim tvö mörk.
Athugasemdir
banner
banner