Fotbolti.net
02.04.23 - 19:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Potter rekinn frá Chelsea (Staðfest)

Potter rekinn frá Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Chelsea tilkynnti rétt í þessu að félagið hafi náð samkomulagi við Graham Potter um að hann yfirgefi félagið.

Þetta kemur í kjölfarið að liðið tapaði 2-0 gegn Aston Villa í gær.

Félagið staðfesti rétt í þessu að það hafi rætt við Potter og sagt skilið við samstarfið í góðu.

„Fyrir hönd félagsins viljum við þakka Graham fyrir hans framlag til Chelsea. Við berum mikla virðingu fyrir honum sem þjálfar aog menneskju. Hann hefur alltaf sýnt fagmennsku og við erum öll svekkt með útkomuna," segir í yfirlýsingu frá Todd Boehly og Behdad Eghbali eigendum félagsins.

Bruno Saltor tekur við af Potter til bráðabirgða á meðan leit af nýjum stjóra er í gangi.

„Við munum öll styðja Bruno og liðið ásamt stuðningsmönnunum. Það eru tíu leikir eftir í deildinni og átta liða úrslit í Meistaradeildinni framundan. Við munum setja allt púður í þessa leiki til að eiga möguleika á að enda tímabilið vel."

Potter kom liðinu í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar þar sem liðið mætir Real Madrid en liðið er í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.