Fotbolti.net
02.04.23 - 13:41
Aksentije Milisic

Rodgers yfirgefur Leicester (Staðfest)

Rodgers yfirgefur Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þær fréttir voru að berast að Brendan Rodgers sé búinn að yfirgefa Leicester City en liðið er í næst neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir tap gegn Crystal Palace í gær.

Rodgers stýrði Leicester í fjögur ár en nú er hann horfinn á braut. Þetta var félagið að tilkynna rétt í þessu.

„Verkefnið sem er framundan hjá okkur í næstu tíu leikjum er nokkuð augljóst. Nú þurfum við að koma saman og sýna æðruleysi, gæði og baráttu," sagði Aiyawatt Srivaddhanaprabha, stjórnarformaður félagsins.

„Leicester City hefur náð samkomulagi við Brendan Rodgers um að hann muni hætta störfum hjá félaginu eftir fjögur ár sem aðalþjálfari liðsins," sagði í tilkynningu frá klúbbnum.

Leicester City er í næst neðsta sæti deildarinnar þegar tíu leikir eru eftir en liðið tapaði í gær gegn Crystal Palace þar sem Palace skoraði með síðustu spyrnu leiksins.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.