Selfoss fær norskan markvörð (Staðfest)


Mynd: Selfoss


Mynd: Selfoss

Norski markvörðurinn Idun-Kristine Jørgensen er gengin til liðs við Selfoss á láni í Bestu deild kvenna. Þessu greinir félagið frá en Idun kemur frá Stabæk.
Idun-Kristine er norsk en hún á að baki landsleiki fyrir U19 ára lið Noregs. Hún er 21 árs gömul og mun koma til landsins á næstunni. Idun mun fara út í æfingaferð til Tenerife með liði Selfoss í þessum mánuði.
„Idun-Kristine, eins og margar jafnöldrur hennar þurfa leiktíma til að geta haldið áfram að þroska leik sinn. Hún er mjög efnileg og við sjáum fyrir okkur að hún geti hjálpað okkur að stíga næstu skref í okkar ferli. Ég er mjög spenntur fyrir að fá hana til liðs við okkur," sagði Björn Sigurbjörnsson við selfoss.net.
Selfoss hafnaði í fimmta sætinu í Bestu deildinni á síðustu leiktíð.
Heimild: Selfoss





