Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   þri 02. júní 2026 23:51
Ívan Guðjón Baldursson
5. deild: Smári áfram með fullt hús - RB vann tíu marka leik
Mynd: Boreal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það fóru fimm leikir fram í 5. deildinni í gærkvöldi þar sem Smári lagði Þorlák að velli og er áfram með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.

Smári er með tólf stig þökk sé tvennu frá Alexander Fannberg Gunnarssyni, en lokatölur gegn Þorláki urðu 3-1.

Skallagrímur og Skautafélag Reykjavíkur deila þriðja sætinu með sjö stig eftir jafntefli innbyrðis.

Þessir tveir leikir fóru fram í A-riðli og voru þrír leikir í B-riðli. Þar deila RB og Kría öðru sætinu eftir mikla markaleiki.

RB skoraði sjö mörk á útivelli gegn KB á meðan Kría hafði betur eftir sjö marka leik við KM.

Stokkseyri er líka með sjö stig eftir fjórar umferðir alveg eins og RB og Kría. Stokkseyringar sigruðu Boltafélagið 108 á Víkingsvelli.

A-riðill:
Smári 3 - 1 Þorlákur
1-0 Alexander Fannberg Gunnarsson ('19 )
2-0 Alexander Fannberg Gunnarsson ('45+1 )
2-1 Snorri Jón Traustason ('73)
3-1 Reynir Thelmuson ('90+2)

Skallagrímur 1 - 1 SR
0-1 Gabríel Geir Ingvarsson ('45 )
1-1 Alejandro Serralvo Gomez ('74 )

B-riðill:
KB 3 - 7 RB
0-1 Dawid Migus ('16 )
1-1 Kristján Orri L Kristjánsson ('21 )
1-2 Leonardo Norbert Mitruscsak ('28 )
1-3 Kristófer Bæring Sigurðarson ('33 , Own goal)
1-4 Dawid Migus ('35 )
1-5 Ísleifur Jón Lárusson ('52 )
1-6 Leonardo Norbert Mitruscsak ('62 )
2-6 Ásbjörn Freyr Jónsson ('69 )
2-7 Ísleifur Jón Lárusson ('80 )
3-7 Kristján Orri L Kristjánsson ('90 )

Kría 4 - 3 KM
1-0 Ólafur Stefán Ólafsson ('3 )
1-1 Anderson Jesús Montañez González ('20 )
1-2 Stefán Sævar Weywadt Gíslason ('28, víti)
2-2 Kristófer Melsted ('56 )
3-2 Bjarni Rögnvaldsson ('61, víti)
4-2 Paul Benjamin Westren ('87 )
4-3 Hafsteinn Esjar Stefánsson ('93 )

BF 108 0 - 2 Stokkseyri
0-1 Marteinn Maríus Marinósson ('50 )
0-2 Arilíus Óskarsson ('70 )
Slapp
banner