Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   þri 02. júní 2026 23:38
Ívan Guðjón Baldursson
Onana snýr aftur til Manchester
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Kamerúnski landsliðsmarkvörðurinn André Onana snýr aftur til Manchester United eftir velheppnaða lánsdvöl hjá Trabzonspor í Tyrklandi.

Trabzonspor hefur áhuga á að fá Onana á láni í eitt ár til viðbótar en hann er 30 ára gamall og aðeins með tvö ár eftir af samningi hjá Rauðu djöflunum, sem keyptu hann fyrir rúmar 50 milljónir evra sumarið 2023.

Onana stóðst ekki væntingar í Manchester en hefur staðið sig vel í Tyrklandi. Hann hjálpaði Trabzonspor að enda í þriðja sæti deildarinnar, en liðið hefði getað blandað sér í titilbaráttuna með betri árangri í fimm síðustu umferðunum.

Það er ekki mikið af félagsliðum sem eru reiðubúin til að festa kaup á Onana og semja við hann um álíka háan launapakka og hann fær hjá Man Utd. Því gæti verið að félagið samþykki að lána Onana aftur út ef ekkert annað félag sýnir honum áhuga í sumar.

Onana lék í heildina 102 leiki á tveimur árum í Manchester. Óljóst er hvort Michael Carrick vilji halda honum til að veita Senne Lammens samkeppni um byrjunarliðssæti.

   20.05.2026 06:00
Bayindir má fara í sumar

Slapp
banner
banner