Fotbolti.net
02.07.13 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Akinfenwa til Gillingham (Staðfest)

Akinfenwa til Gillingham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn stóri og stæðilegi Adebayo Akinfenwa hefur gengið til liðs við Gillingham í ensku C-deildinni.

Akinfenwa er 100 kíló og rífur upp 175 kíló í bekkpressu en hann hefur vakið mikla athygli í ensku D-deildinni undanfarin tímabil.
Þar hefur Akinfenwa leikið með Northampton en á síðasta tímabili skoraði hann 17 mörk með liðinu.

Akinfenwa yfirgaf herbúðir Northampton á dögunum og nú er ljóst að hann mun leika með Gillingham næsta vetur.

Akinfenwa þekkir vel til hjá Gillingham því hann spilaði með félaginu áður en hann fór til Northampton árið 2011.

Sjá einnig:
Lögreglan trúði ekki að Akinfenwa spilaði fótbolta
100 kílóa framherji í ensku D-deildinni - Tekur 175 kíló í bekk
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.