Fotbolti.net
02.07.13 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Allan McGregor til Hull (Staðfest)

Allan McGregor til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur keypt markvörðinn Allan McGregor frá Besiktas í Tyrklandi.

Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur skrifað undir þriggja ára samning við Hull.

Hull komst upp í ensku úrvalsdeildina í vor og félagið hefur verið í leit að markverði síðan þá.

Hull reyndi fyrst ítrekað að fá Kasper Schmeichel frá Leicester en það gekk ekki og því ákvað félagið að snúa sér að McGregor.
McGregor lék yfir 200 leiki með Rangers áður en hann fór til Besiktas í fyrra en hann á 29 landsleiki að baki með Skotum.

Heimild: Heimasíða Hull

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.