Fotbolti.net
02.07.13 - 18:32
Brynjar Ingi Erluson

Helgi Valur Daníelsson til Belenenses (Staðfest)

Helgi Valur Daníelsson

Helgi Valur Daníelsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Portúgalska úrvalsdeildarliðið Belenenses hefur staðfest komu Helga Vals Daníelssonar, en hann kemur til félagsins frá AIK í Svíþjóð.
Helgi Valur, sem er 31 árs gamall er fæddur í Svíþjóð, en hann hóf feril sinn hjá Fylki áður en hann hélt út í atvinnumennsku til Peterborough.

Hann hefur leikið með Öster, Elfsborg, Hansa Rostock og nú síðast AIK á feril sínum, en samningur hans við AIK átti að renna út eftir tímabilið og ljóst var að hann fengi ekki endurnýjun á samning sínum.

Helgi hefur verið í viðræðum við Belenenses í portúgölsku úrvalsdeildinni, en hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Hann mun ganga til liðs við Belenenses í lok mánaðar, en hann er fyrsti íslenski leikmaðurinn sem semur við portúgalskt úrvalsdeildarlið.

Hollendingurinn Mitchell van der Gaag þjálfar Belenenses, en félagið gæti fengið fleiri Íslendinga til liðs við sig, en eins og kom fram í fjölmiðlum í dag þá er Sverrir Ingi Ingason, leikmaður Breiðabliks, á blaði hjá þeim.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.