Arsenal hefur keypt framherjann Gabriel Martinelli frá Ituano í Brasilíu.
Kaupverðið hljóðar upp á sex milljónir punda en hinn 18 ára gamli Martinelli þykir mikið efni.
Kaupverðið hljóðar upp á sex milljónir punda en hinn 18 ára gamli Martinelli þykir mikið efni.
„Þetta hefur verið draumur síðan ég var barn og það hefur líka verið draumur fjölskyldunnar að ég spili í Evrópu með stóru liði eins og Arsenal. Ég ætla að grípa tækifærið," sagði Martinelli.
„Ég lít upp til Cristiano Ronaldo, [Lionel] Messi og Neymar því það eru leikmenn sem geta gert gæfumuninn og eru mjög fagmannlegir. Þeir leggja allt í leikinn."
🇧🇷 ✈️ 🏴
— Arsenal FC (@Arsenal) July 2, 2019
Gabriel’s a Gunner 🤙
Athugasemdir