02.07.19 - 18:52
Brynjar Ingi Erluson
Gunnlaugur Fannar lánaður í Hauka (Staðfest)

Gunnlaugur Fannar er farinn aftur heim í Hauka

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Karlalið Hauka hefur styrkt sig fyrir seinni hluta Inkasso-deildarinnar en Gunnlaugur Fannar Guðmundsson er kominn á láni frá Víking R.
Gunnlaugur Fannar er fæddur árið 1994 og uppalinn í Haukum en hann fór í Víking í desember árið 2016 og á að baki 31 leik og 1 mark fyrir Fossvogsliðið.
Hann hefur aðeins fengið að spila þrjá leiki á þessu tímabili undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar en er nú kominn með félagaskipti í Hauka.
Hann verður á láni hjá uppeldisfélaginu út þetta tímabil.
Gunnlaugur á að baki 100 leiki og 5 mörk fyrir Hauka í bæði deild- og bikar.
Haukar eru í 9. sæti með 9 stig eftir níu leiki.