Inter hefur fengið Stefano Sensi frá Sassuolo.
Þessi 23 ára varnarsinnaði miðjumaður gerir eins árs lánssamning en Inter er með klásúlu um að geta keypt hann næsta sumar.
Sensi kom til Mílanó í gærkvöldi, gekkst undir læknisskoðun í dag og skrifaði svo í kjölfarið undir samning.

Frammistaða Sensi með Sassuolo gerði það að verkum að hann lék sína fyrstu tvo landsleiki fyrir Ítalíu.
„Ég er ánægður með að vera orðinn leikmaður Inter. Ég er ánægður með þessa ákvörðun og býst við frábæru tímabili," segir Sensi.
Inter hafnaði í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar á liðnu tímabili en Antonio Conte tók við stjórnartaumunum eftir tímabilið.
Athugasemdir