Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 02. júlí 2019 09:16
Magnús Már Einarsson
Tottenham kaupir Clarke (Staðfest) - Fyrstu kaupin í 517 daga
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur keypt kantmanninn unga Jack Clarke frá Leeds en félagið staðfesti þetta í dag.

Clarke er 18 ára gamall en hann vera áfram á láni hjá Leeds á komandi tímabili áður en hann kemur til Tottenham,

Þrátt fyrir ungan aldur þá spilaði Clarke talsvert með Leeds í Championship deildinni á síðasta tímabili og vakti athygli fyrir góða frammistöðu.

Tottenham keypti engan leikmann síðastliðið sumar og Clarke er fyrsti leikmaðurinn sem félagið kaupir í 517 daga.



Athugasemdir
banner
banner