Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 02. júlí 2020 16:30
Elvar Geir Magnússon
Mavididi til Montpellier (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Stephy Mavididi hefur gengið í raðir franska félagsins Montpellier frá Juventus á 5,7 milljónir punda.

Þessi 22 ára Englendingur var á lánssamningi hjá Dijon á síðasta tímabili og skoraði átta mörk í 28 leikjum.

Mavididi kom upp úr unglingastarfi Arsenal en lék ekki fyrir aðalliðið áður en hann fór til Juventus 2018.

„Ég er mjög ánægður með að vera að fara til Montpellier," segir Mavididi.

Mavididi var lánaður til Charlton og Preston á meðan hann var hjá Arsenal.

Hann lék einn leik fyrir aðallið Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner