Sara Björk Gunnarsdóttir er að yfirgefa herbúðir þýska stórliðsins Wolfsburg eftir fjögur ár hjá félaginu.
Tilkynnt var í gær að Sara muni ganga í raðir Evrópumeistara Lyon. Sara, sem varð á dögunum Þýskalandsmeistari í fjórða sinn, gerir tveggja ára samning við Lyon.
Lyon hefur orðið franskur meistari fjórtán ár í röð. Liðið hefur einnig unnið Meistaradeildina fjögur ár í röð.
Sara var í miklum metum hjá Wolfsburg og hér að neðan má sjá skemmtilegt kveðjumyndskeið sem þýska meistararliðið gerði fyrir landsliðsfyrirliða okkar Íslendinga.
DANKE, SARA! 💚#VfLWolfsburg #Wölfinnen #DieLiga @sarabjork18 pic.twitter.com/qI0COB5bQi
— VfL Wolfsburg Frauen (@VfLWob_Frauen) July 2, 2020
Athugasemdir