Van Dijk vill framlengja - PSG og Juve vilja Salah - Man Utd vill Rabiot
banner
   fös 02. ágúst 2024 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingar þurftu að skrifa söguna og gerðu það
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framkvæmdastjóri Víkings, Haraldur Haraldsson, vakti á X athygli á þeirri staðreynd í gær að sigurinn gegn Egnatia í Albaníu hefði verið fyrsti sigur í Víkings á útivelli í sögunni.

„Fyrsti Evrópusigur Víkings á útivelli í sögunni. Sturluð staðreynd fyrir þennan risaklúbb!" skrifaði Haraldur.

Víkingur þurfti að vinna sigur, liðið var marki undir eftir fyrri leik liðanna sem fram fór á Víkingvelli, og Víkingar heldur betur gerðu það. Íslands- og bikarmeistararnir unnu 0-2 sigur og eru komnir áfram í 3. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.

Lestu um leikinn: Egnatia 0 -  2 Víkingur R.

Víkingur mætir Flora Tallinn frá Eistlandi í 3. umferðinni og fer fyrri leikurinn fram á Víkingsvelli næsta fimmtudag.


Athugasemdir
banner
banner