Harðkjarna stuðningsmenn IFK Gautaborgar, hinir svokölluðu „ultras“ stuðningsmenn, hengdu upp borða í skjóli nætur á æfingasvæði félagsins.
Á borðunum eru send þau skilaboð að félagið eigi að rifta samningi Kolbeins Sigþórssonar.
Á einum borðanum stendur að félagið þurfi að velja á milli númer ellefu (sem er númer Kolbeins) eða númer tólf (sem táknar stuðningsmenn liðsins).

Þórhildur Gyða Arnarsdóttir steig fram í viðtali við RÚV síðasta föstudag og lýsti þar ofbeldi og kynferðislegri áreitni af hálfu Kolbeins.
Kolbeinn sendi frá sér yfirlýsingu í gær en aðgerðarhópurinn Öfgar lýsti svo yfir óánægju sinni með yfirlýsinguna.
Kolbeinn var valinn í íslenska landsliðshópinn fyrir komandi leiki en eftir umfjöllun um hans mál þá ákvað stjórn KSÍ að vísa honum úr hópnum.
Bilder från Kamratgården.
— David Vukovic (@DaVukovic) September 2, 2021
📸 Ultras Göteborg pic.twitter.com/u1OXA6UN18
Athugasemdir