Fotbolti.net
02.09.23 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fulham nældi í bakvörð Milan (Staðfest)

Fulham nældi í bakvörð Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Fodé Ballo-Touré bakvörður AC Milan á Ítalíu er genginn til liðs við Fulham á láni en þetta var staðfest um miðnætti.

Ballo-Toure er fæddur í Frakklandi en á að baki 25 landsleiki fyrir hönd Senegal.

Hann er uppalinn hjá PSG og lék með varaliði félagsins áður en hann gekk til liðs við Lille. Hann lék einnig með Monaco áður en hann færði sig yfir til Ítalíu og gekk til liðs við Milan.

Hann kemur til með að veita Antonee Robinson samkeppni um vinstri bakvarðarstöðuna hjá Fulham.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.