Fotbolti.net
02.09.23 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Iwobi gerir fimm ára samning við Fulham (Staðfest)

Iwobi gerir fimm ára samning við Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alex Iwobi samdi við Fulham á síðustu metrunum á lokadegi félagaskipta gluggans í gær. Hann gerir fimm ára samning við félagið.

Hann kemur til liðsins frá Everton en kaupverðið er í kringum 20 milljónir punda.

Iwobi gekk til liðs við Everton sumarið 2019 en þá var Marco Silva stjóri liðsins.

Þeir hittast nú aftur hjá Fulham.

„Ég er í skýjunum, ég get ekki beðið eftir því að byrja. Svo spenntur að byrja vegferðina mína hérna," sagði Iwobi við undirskriftina.

„Marco Silva ræddi við mig um metnað félagsins og ég er klár í þetta. Vonandi get ég komið með eitthvað að borðinu fyrir félagið."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.