
Sevilla fær fyrrum sóknarmann Real Madrid (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sevilla hefur nælt í framherjan Mariano Diaz á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Real Madrid rann út í sumar.
Þessi þrítugi framherji er uppalinn hjá Real Madrid og lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins árið 2016. Hann gekk til liðs við Lyon ári síðar en snéri aftur til Real árið 2018.
Hann á að baki 60 leiki í La Liga fyrir Real og skoraði 7 mörk.
Á Gluggadeginum tryggði Sevilla sér einnig varnartengiliðinn Boubakary Soumare sem kemur á lánssamningi frá Leicester út tímabilið.
Sevilla er á botni La Liga eftir fyrstu þrjá leikina án stiga.




