Sjöundi leikmaðurinn til Forest á gluggadeginum (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Það var vægast sagt nóg um að vera á skrifstofunni hjá Nottingham Forest í gær.
Félagið staðfesti komu sex leikmanna í gærkvöldi en sá sjöundi var staðfestur eftir miðnætti en það er Andrew Omobamidele.
Omobamidele er 21 árs gamall miðvörður sem kemur til liðsins frá Norwich. Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið.
Kaupverðið er 11 milljónir punda.
Hann lék 5 leiki fyrir Norwich í úrvalsdeildinni þegar liðið féll tímabilið 2021/22 og spilaði 34 leiki í Championship deildinni á síðustu leiktíð.




