Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 02. október 2020 20:33
Victor Pálsson
Carlos Vinicius til Tottenham (Staðfest)
Mynd: Tottenham
Tottenham hefur staðfest komu framherjans Carlos Vinicius en hann kemur til félagsins frá Benfica.

Tottenham hefur staðfest komu framherjans Carlos Vinicius en hann kemur til félagsins frá Benfica.

Um er að ræða öflugan sóknarmann en Tottenham fær hann á láni út tímabilið og getur svo keypt næsta sumar.

Vinicius er 25 ára gamall hávaxinn sóknarmaður en hann skoraði 18 mörk í 33 leikjum í deildinni fyrir Benfica.

Leikmaðurinn hefur áður reynt fyrir sér hjá Napoli á Ítalíu en hann fékk engar mínútur tímabilið 2018-2019.

Hann mun veita öflugri sóknarlínu Tottenham samkeppni en Harry Kane er númer eitt í fremstu víglínu.

Vinicius mun klæðast treyju númer 45 hjá Tottenham.

Athugasemdir
banner
banner
banner