Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 02. október 2020 22:30
Victor Pálsson
Sky: Bayern í viðræðum við Chelsea - Hudson-Odoi að kveðja?
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því í kvöld að Bayern Munchen sé í viðræðum við Chelsea vegna vængmannsins Callum Hudson-Odoi.

Fyrr í dag greindi Bild í Þýskalandi frá því að áhuginn væri til staðar og hefur nú Sky tekið undir þær sögusagnir.

Bayern hefur lengi haft augastað á þessum efnilega leikmanni og reyndi að fá hann í sínar raðir í byrjun árs en án árangurs.

Bayern bauð 30 milljónir í enska landsliðsmanninn en Chelsea neitaði að selja og skrifaði Hudson-Odoi seinna undir nýjan samning.

Nú er útlit fyrir það að Hudson-Odoi gæti verið á leið til Þýskalands eftir allt saman en Bayern mun fá leikmanninn lánaðan út tímabilið.

Sky segir að það sé svo skylda Bayern að kaupa leikmanninn næsta sumar og gæti ferill hans á Stamford Bridge verið á enda.

Félagaskiptaglugginn lokar næstkomandi mánudag.

Athugasemdir
banner
banner
banner