mán 02. nóvember 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Júlli og Teddi taka við Fjölni (Staðfest)
Júlíus Ármann Júlíusson og Theódór Sveinjónsson
Júlíus Ármann Júlíusson og Theódór Sveinjónsson
Mynd: Fjölnir
Júlíus Ármann Júlíusson og Theódór Sveinjónsson hafa verið ráðnir þjálfarar Fjölnis í meistaraflokki kvenna. Fjölnir féll úr Lengjudeildinni á dögunum og spilar í 2. deildinni næsta sumar.

Júlíus og Theódór taka við af Axel Erni Sæmundssyni sem hverfur til annarra verkefna innan félagsins. Axel stýrði Fjölni undir lok móts eftir að Dusan Ivkovic hætti með liðið.

Af heimasíðu Fjölnis
Júlíus er reyndur og metnaðarfullur þjálfari sem þekkir vel til kvennaboltans en hann hefur gegnt starfi aðalþjálfara meistaraflokks kvenna Aftureldingar frá árinu 2015 þar sem hann stýrði liðinu meðal annars upp úr 2. deild árið 2017. Að auki hefur hann sinnt þjálfun hjá Gróttu í tæp 20 ár við góðan orðstír þar sem hann stýrði meðal annars meistaraflokki karla en hann var einnig sigursæll þjálfari þau 10 ár sem hann var við störf hjá Breiðablik. Júlíus hefur lokið UEFA-A þjálfaragráðu.

Theódór þekkjum við Fjölnismenn vel þar sem hann stýrði nokkrum yngri flokkum félagsins hér á árum áður og meistaraflokki kvenna í Landsbankadeildinni árið 2008. Síðustu ár hefur Theódór þjálfað yngri flokka Víkings með góðum árangri og jafnframt verið í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna Víkings. Áður var hann þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu, Þrótti og aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna Vals sem varð Íslandsmeistari á árunum 2006 og 2007. Theódór hefur einnig lokið UEFA-A þjálfaragráðu.

Knattspyrnudeild Fjölnis bindur miklar vonir við þessa ráðningu og hlakka til samstarfsins á komandi tímabilum.

Fjölnir þakkar Axel Erni fyrir sitt mikilvæga framlag undanfarin ár og býður Júlla og Tedda velkomna til starfa.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner