Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fim 02. desember 2021 21:42
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo skoraði 800. markið á ferlinum
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo mætir í stóru leikina. Hann gerði 800. mark sitt á ferlinum og kom Manchester United í 2-1 gegn Arsenal.

Ronaldo skoraði með góðu skoti úr teignum eftir sendingu frá Marcus Rashford.

Hann hefur nú skorað 800 mörk fyrir bæði félagaslið og landslið en 129 af þessum mörkum hafa komið með United.

Ronaldo er með 115 mörk fyrir portúgalska landsliðið og er markahæsti landsliðsmaður frá upphafi í karlaflokki.

Ótrúlegt afrek hjá Portúgalanum sem er markahæsti knattspyrnumaður frá upphafi. Pele skoraði 765 mörk á ferli sínum og Lionel Messi hefur gert 756 mörk.


Athugasemdir
banner
banner