Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 03. janúar 2020 14:29
Elvar Geir Magnússon
Napoli hefur áhuga á Vertonghen
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Napoli hafi áhuga á varnarmanninum Jan Vertonghen hjá Tottenham.

Napoli telur að þessi reynslumikli leikmaður geti fyllt skarð Kalidou Koulibaly sem líklega verður seldur næsta sumar.

Samningur Vertonghen við Tottenham rennur út í sumar og hann má ræða við erlend félög í þessum mánuði.

Vertonghen er 32 ára og er opinn fyrir því að ræða við Tottenham um nýjan samning, sérstaklega eftir að landi hans og félagi Toby Alderweireld gerði nýjan þriggja ára samning fyrir jólin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner