Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 03. janúar 2023 12:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forest sendir Bade til baka (Staðfest) - Einungis einu sinni í hóp
Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur gefið það út að félagið hafi náð samkomulagi við franska félagið Rennes að lánssamningnum milli félaganna varðandi Loic Bade verði rift.

Bade var lánaður til Forest síðasta sumar en hefur ekki staðið undir væntingum og er nú farinn aftur til Frakklands.

Bade kom til Notingham undir lok félagsskiptagluggans og var einungis einu sinni í leikmannahópi liðsins á meðan hann var á mála hjá félaginu. Þá lék hann í tveimur æfingaleikjum með liðinu í síðasta mánuði.

Bade er 22 ára Frakki sem er hluti af U21 landsliði Frakklands. Hann hefur verið orðaður við Sevilla og gæti farið þangað á láni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner