Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   þri 03. janúar 2023 13:00
Elvar Geir Magnússon
Ten Hag segir þörf fyrir nýjan sóknarmann
Erik ten Hag, stjóri Manchester United, segir að það sé þörf fyrir nýjan sóknarmann hjá félaginu í janúar til að aðstoða við baráttuna um Meistaradeildarsæti.

„Ég tel okkur vera með gott lið þegar allir leikmenn eru til reiðu en það eru margir leikir framundan og ég tel þörf á að við bætum við okkur sóknarmanni," segir Ten Hag.

United er sem stendur í fjórða sæti með 32 stig og á leik til góða á Newcastle sem er í þriðja sæti með 34 stig.

Cristiano Ronaldo hefur yfirgefið United eins og frægt er.

„Við þurfum að fá sóknarmann sem getur haft áhrif, annars er bara verið að brenna peninga án þess að styrkja hópinn og það hjálpar ekkert.

Marcus Rashford skoraði sigurmarkið gegn Wolves í síðasta leik en Anthony Martial hefur verið mikið á meiðslalistanum.

Manchester United mætir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 36 25 8 3 83 37 +46 83
2 Arsenal 36 18 14 4 66 33 +33 68
3 Newcastle 36 20 6 10 68 45 +23 66
4 Man City 36 19 8 9 67 43 +24 65
5 Chelsea 36 18 9 9 62 43 +19 63
6 Aston Villa 36 18 9 9 56 49 +7 63
7 Nott. Forest 36 18 8 10 56 44 +12 62
8 Brentford 36 16 7 13 63 53 +10 55
9 Brighton 36 14 13 9 59 56 +3 55
10 Bournemouth 36 14 11 11 55 43 +12 53
11 Fulham 36 14 9 13 51 50 +1 51
12 Crystal Palace 36 12 13 11 46 48 -2 49
13 Everton 36 9 15 12 39 44 -5 42
14 Wolves 36 12 5 19 51 64 -13 41
15 West Ham 36 10 10 16 42 59 -17 40
16 Man Utd 36 10 9 17 42 53 -11 39
17 Tottenham 36 11 5 20 63 59 +4 38
18 Ipswich Town 36 4 10 22 35 77 -42 22
19 Leicester 36 5 7 24 31 78 -47 22
20 Southampton 36 2 6 28 25 82 -57 12
Athugasemdir
banner
banner