Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. janúar 2023 18:45
Brynjar Ingi Erluson
Vestri fær Fatai frá Kórdrengjum (Staðfest)
Mynd: Vestri
Nígeríski miðjumaðurinn Fatai Gbadamosi skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Vestra en hann kemur til félagsins frá Kórdrengjum.

Fatai er 24 ára gamall og kom til Kórdrengja á síðasta ári og kláraði sitt annað tímabil með liðinu í september.

Hann spilaði 40 leiki og skoraði 3 mörk á þessum tveimur tímabilum með Kórdrengjum en hann mun nú leika listir sínar með Vestra.

Fatai skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Vestra en þar hittir hann fyrrum þjálfara sinn, Davíð Smára Lamude.

„Ég hef leitast við að fá Fatai vestur frá því að ég tók við sem þjálfari Vestra, en hann er gríðarlega sterkur og vinnusamur leikmaður sem kemur til með að styrkja okkur mikið,“ sagði Davíð Smári við heimasíðu Vestra.

Nígeríski leikmaðurinn spilar iðulega sem varnarsinnaður miðjumaður og á að baki leiki fyrir U21 árs landslið Nígeríu.
Athugasemdir
banner
banner
banner