Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   lau 03. febrúar 2024 11:16
Brynjar Ingi Erluson
Lingard með tilboð frá 26 félögum
Englendingurinn Jesse Lingard er með tilboð frá 26 félögum um allan heim en virðist þó á leið til Seoul FC í Suður-Kóreu.

Lingard hefur verið án félags síðan síðasta sumar er hann yfirgaf Nottingham Forest.

Hann æfði með West Ham og Al Ettifaq, en fékki ekki samning og hefur því æft einn með einkaþjálfara.

Þessi fyrrum leikmaður Manchester United er sagður á leið til FC Seoul í Suður-Kóreu en hann hafði úr mörgum tilboðum að velja eða 26 talsins, þar á meðal Lazio á Ítalíu.

Umboðsmaðurinn hans hélt þessu fram í It's all kicking off Transfer Pocdast.

Lingard mætir væntanlega til Suður-Kóreu á mánudag til gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir samning við FC Seoul.
Slapp
banner
banner
banner