Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. mars 2021 21:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Held að Thiago myndi henta Man Utd betur"
Thiago hefur valdið vonbrigðum hjá Liverpool á tímabilinu.
Thiago hefur valdið vonbrigðum hjá Liverpool á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Paul Scholes, fyrrum miðjumaður Manchester United, telur að spænski miðjumaðurinn Thiago henti mögulega leikstíl United betur en Liverpool.

Thiago var keyptur til Liverpool síðasta sumar frá Bayern München en hann hefur valdið vonbrigðum á tímabilinu.

Scholes er ekki viss um að Thiago henti í leikstíl Liverpool þar sem leikmenn þurfa að hlaupa mikið.

„Hann virðist ekki vera leikmaður sem hentar Jurgen Klopp," sagði Scholes við Premier League Productions.

„Ég held að hann henti Man Utd betur. Þar gæti hann verið hluti af tveggja manna miðju með leikmanni sem situr til baka - miðjumanni sem er góður varnarlega - á meðan hann getur stjórnað leikjum."

„Jurgen Klopp og Liverpool, ég sé þá ekki stjórna leikjum. Þeir keyra á andstæðinginn. Hann er ekki alveg með orkuna til að keyra yfir andstæðinginn," sagði Scholes jafnframt.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner