Ari Steinn í Víði (Staðfest)

Ari Steinn í leik með Víði árið 2019

Mynd: Guðmundur Sigurðsson - Víðir Garði

Ari Steinn í leik með Víði árið 2019

Mynd: Guðmundur Sigurðsson - Víðir Garði
Ari Steinn Guðmundsson er genginn til liðs við Víði sem leikur í 3. deildinni í sumar en hann kemur frá Keflavík.
Víðismenn þekkja vel til Ara en hann lék með liðinu frá 2017-2019. Hann var einnig í liðinu seinni hluta síðasta sumars á láni frá Keflvíkingum.
Hann hefur leikið 71 leik með liðinu og skorað 25 mörk. Hann kom við sögu í 3-2 sigri Víðis gegn Haukum í Mjólkurbikarnum í gær.
„Ari er frábær liðsstyrkur fyrir tímabilið og bjóðum við hann velkominn aftur." Segir í tilkynningu Víðis.





